meiri áföll...

Pinch hef ekkert latið á mér kræla síðustu vikur, enda kannski skiljanlegt. Mikið hefur gengið á síðustu vikur.

Fyrst lenti bróðir minn í því óláni að hrapa 15 metra til jarðar í vinnunni sinni. Er það kraftaverk að sönnu að hann skuli í raun "ganga heill" frá þessu. Hann tví-hryggbraut sig, 6 rifbein öðrum megin brotnuðu, bráðgaði mjaðmargrindina, og lærbrotnaði við þetta fall. Það vantar enga kafla í manninn og ekki er hann lamaður þannig að maður þakkar Guði fyrir þetta lán.

Svo kom að Barcelona ferðinni......held að maður segi sem minnst um hana nema að hún var alveg hryllilega skemmtileg, mikið rosalega er mikið um pöbba og skemmtistaði í Barca er eina sem að ég mun láta uppi um þessa ferð hér inni......tær snilldarferð.Whistling

Þann 16. ákvað ég að fara með skvísurnar mína á skauta upp í Egilshöll. Í stuttu máli sá ég um að detta fyrr okkur allar. Ég er sem sagt með 2 dökkblá hné og úlnliðsbrotin í þokkabót. Já takk, þegar ég fékk gifsið um kvöldið þá var það sett of fast á mig sem að olli þessum þvílíku verkjum. Ég vaknaði um miðja nótt með kaldan svita rennandi niður ennið. Hringt var á leigubíl í snatri til að koma mér upp á spítala. Svo þjáð var ég að ég hreinlega barðist við að halda meðvitund. Þegar á spítalann var komið þýddi lítið annað en að gefa mér morfín og bólgueyðandi ásamt ógleðisstillandi, þarna skalf ég og nötraði eins og hrísla á meðan að læknirinn tók af mér gifsið sem að hafði verið sett á allt of þröngt og brúnin á gifsinu lá á brotna beininu. Þarna lá ég inni til kl 7:30 um morguninn. Á einhverjum tímapunkti í þessu fáti öllu týndi ég lyklakippunni minni og er hún enn ófundin. Ég var send heim með teygjusokk á höndinni á meðan að bólgulyfin færu að virka. Síðar um kvöldið þá hringdi ég aftur í sama lækninn og hafði sinnt mér til að fá frekari fréttir af myndunum. Hann sagði mér að koma mér aftur uppeftir til að fá gifs að nýju. Hér sit ég því og reyni að pikka eftir bestu getu.

Þar til næst, farið varlega elskurnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Ja hérna. Óska þér góðs bata.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 24.3.2008 kl. 10:55

2 Smámynd: Eva H.

Takk fyrir batakveðjurnar.....er orðin lanþreytt á öllum þessum óhöppum síðustu mánuði þó að mis alvarleg hafi verið.

Eva H., 25.3.2008 kl. 21:26

3 identicon

Elsku dúllan mín.

Þú ert nú meiri hrakfallabálkurinn og gott að brói slasaðist þó varla meira en þetta þó nóg sé.

Á eftir að fá ferðasöguna frá barsa fæ hana bara í gengum símann

Láttu þér batna sjáumst fljótlega kossa og knús

eva og isabella

Eva Björk Ómarsdóttir (IP-tala skráð) 25.3.2008 kl. 22:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband