Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Alltaf er klipið af þeim sem síst meiga

sem sagt hjá láglauna og barnafólki. Nú hlýtur þessi blessaði áliðnaður og fiskerískarlar að una sátt við sitt enda krónan í sögulegu lágmarki. Þessi útflutningur sem að er á hendi svo fárra aðila eru að mala gull. En hvað með okkur öll hin sem að eigum engan kvóta eða ál? Það eru miklu, miklu fleiri sem að mundu hagnast á því að krónan væri sterkari því þá væri innflutningur hagkvæmari og ætti að skila sér í pyngju landsmanna. Til dæmis bændur sem að þurfa að þola óþolandi hækkun á öllu sem að viðkemur þeirra rekstri sem að skilar sér í hærra vöruverði til okkar neytenda. En svo er nú það að alltaf er "erfitt" fyrir heildsalana að lækka sitt verð aftur þegar þeir eru búnir að hækka, nefni bara t.d. olíufélögin. Hvað eru neytendasamtökin og verðlagseftirlitið eiginlega að gera, eða hvað vald hafa þau. Þetta er nú ekki svo stórt þjóðfélag að það ætti nú alveg að vera hægt að taka í rassgatið á þessu liði og flengja all svakalega, nú og ef það vantar lagaheimildir til skulu þessir blessaðir alþingismenn hætta að hugsa um eigin hagsmuni, taka puttana úr nefinu á sér og hreyfa á sér rass%#%& og sjá til þess að eitthvað sé gert í málinu. Eiga þeir ekki annars að vera að vinna fyrir almúgann?

Ég er svo fjúkandi reið að það ríkur úr báðurm eyrunum á mér og væri ekki hissa á að einhver mundi kalla til slökkviliðið bráðum til að kæla mig niður. Ég er búin að fá mig full sadda á þessari spillingu sem að viðhefst hér á landi og svo segja allir: " Ha, spilling, er það? "

Kommon vaknið!!


mbl.is Bleyjurnar hækkuðu verulega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má bjóða ykkur olíugrafinn lax eða silung.

Bara svona nýtt á matseðilinn. Alveg nýhreinsaður og olíuborinn tilbúinn beint á pönnuna.

Og svo er barist fyrir að fá olíuhreinsistöð. Mæ god.


mbl.is Olíubrák í Elliðavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ertu ekki að djóka???

Þetta er með ólíkindum.....var ekki fólkið einu sinni samferða um borð í vélina. Naumast samheldnin í þessari fjölskyldu. Alveg spurning hvort að barnaverndar yfirvöld áttu að afhenda barnið aftur. Það er eitt að skilja barnið sitt eftir í Hagkaup í smá stund eða á stórum flugvelli og ganga um borði í vélina og taka á loft. Maður spyr sig.
mbl.is Gleymdu barninu á flugvellinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enda er hann......

......best geymdur í 2x3 mtr. fangaklefa það sem eftir er. Láta hann aðeins fá smjörþefinn af því sem að hann hefur látið dóttur sína ganga í gegnum, svo með tímanum væri hægt að stækka klefann um 2 fermetra eða svo og stinga inn til hans eldunargræju eða bara örbylgjuofn og láta hann fá síðan lífstíðarbirgðir af 1944 réttunum þá þarf sem minnst fyrir honum að hafa.
mbl.is Fritzl vill ekki fara úr fangaklefanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heppni

en er engin gæsla á skólalóð Hjallastefnunnar.....maður bara spyr sig? Sér í lagi þegar að svona ung börn eru að leik í frímínútum. Þarna í nágrenninu er mikil umferð þungabifreiða þannig að lán er að ekki hafi hlotist af alvarlegt slys.
mbl.is Litla stúlkan fundin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband